Nuddkerti - Súkkulaði
Þetta nuddkerti er unnið úr náttúrulegum og lífrænum hráefnum og gefur bæði nuddara og nuddþega þægilega tilfinningu við notkun. Tilvalið fyrir nuddara að bæta vaxkertanuddi inn sem nýrri meðferð en hentar líka fyrir þá sem vilja skapa notalega stund með nákomnum.
Chocolate nuddkertið hefur mildan og notalegan súkkulaðiilm og hentar fyrir allan líkamann en einkum mælt með því fyrir þurra húð.
Notkun:
Kveikt er á kertinu í 10-15 mínútur. Slökkvið á kertinu og látið vaxið kólna niður í passlegt hitastig sem hentar nuddþega og nuddara. Prufaðu hitastigið á vaxinu á eigin skinni í litlu magni fyrst áður en nuddið hefst.
Helstu innihaldsefni:
Shea butter, coconut oil, rosehip extract.
Innihaldsefni (INCI flokkun):
Butyrospermum Parkii Butter, C10-18 Triglycerides, Cocos Nucifera Oil, Parfum, Helianthus Annuus Seed Oil, Rhodiola Rosea Root Extract, Rosmarinus Officinalis Leaf Extract, Tocopheryl Acetate, Ascorbyl Palmitate, Lecithin.