Kaupskilmálar sensitive.is


1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vörum eða þjónustu af vefsvæðinu www.sensitive.is og undirsíðum hennar og eru samþykktir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin.


2. Skilgreiningar
Seljandi er Sens ehf., Kaldaseli 13, 109 Reykjavík, kt. 670423-0690,VSK númer: 148505, tölvupóstfang: sens@sensitive.is og kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikningi. Kaupandi skal hafa náð 18 ára aldri.


3. Skilaréttur
Heimilt er að skila vörum innan 14 daga frá móttöku vöru að uppfylltum skilyrðum nefndum hér á eftir. Kaupandi skal geta fært sönnur á það að hann hafi keypt vöruna innan 14 daga frá móttöku vörunnar og ber hann ábyrgð á ástandi vöru við vöruskil. Skilaréttur er að öðru leyti samkvæmt lögum um neytendakaup hverju sinni. Ekki er hægt að skila vörum sem eru sérpantaðar eða hafa verið notaðar. Ef meira en 14 dagar hafa liðið frá afhendingu vöru, er ekki boðið upp á endurgreiðslu eða vöruskipti. Kostnaður sem kann að hljótast við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Þjónusta er ekki endurgreidd.


4. Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru áður en gengið er frá greiðslu og er gefinn upp við kaup á vörum og þjónustu.


5. Afhending
Afhendingartími getur numið 6 vikum eftir atvikum ef panta þarf vöru erlendis frá. Vörur sem eru til á lager eru að jafnaði afhentar innan 7 daga frá móttöku greiðslu fyrir vöru en lengri tími getur tekið ef senda þarf vöru utan höfuðborgarsvæðis. Nánari afhendingartími eða fyrirkomulag við afhendingu er samningsatriði milli seljanda og kaupanda.


6. Verð og verðbreytingar
Öll verð sem gefin eru upp á vefsíðu vefverslunar www.sensitive.is eru gefin upp í íslenskum krónum að inniföldum virðisaukaskatti og jafnframt birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Seljandi áskilur sér rétt til að afturkalla viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp á vefsíðu vefverslunar. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust til að mynda vegna rangra upplýsinga eða skráningar.


7. Upplýsingar
Upplýsingar um vörur gefur seljandi upp eftir bestu vitund. Fyrirvari er settur á hverjar þær upplýsingar eða innsláttarvillur sem fram koma á vefsíðu vefverslunar www.sensitive.is og áskilur seljandi sér rétt til að breyta þeim fyrirvaralaust. Seljandi mun halda kaupanda upplýstum um stöðu sendingar og afhendingu óski hann frekari upplýsinga þess efnis.


8. Pöntun
Forsenda afgreiðslu pöntunar er að greiðsla hefur borist seljanda frá kaupanda. Seljandi áskilur sér rétt til að afturkalla pöntun í heild eða að hluta ef viðkomandi vara eða þjónusta er uppseld, gölluð eða ekki lengur í boði. Ef greiðsla hefur átt sér stað eftir að pöntun er afturkölluð mun endurgreiðsla fara fram.
 
7. Meðferð persónuupplýsinga
Seljandi meðhöndlar allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til þeirra viðskipta sem þær eru gefnar fyrir. Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu. Upplýsingar eru undir engum kringumstæðum seldar til þriðja aðila. Að öðru leyti gilda lög um persónuvernd hverju sinni.


8. Öryggi
Greiðslur sem fara fram um vefsíðu vefverslunar www.sensitive.is fara fram um greiðslugátt Rapyd hf. og seljandi ber ekki ábyrgð á hvers kyns óviðráðanlegum ástæðum þess að greiðsla berst ekki frá kaupanda til seljanda.


9. Heilsufar

Seljandi ber ekki ábyrgð á hverju því heilsufarstjóni sem kann að hljótast vegna notkunar á þeim vörum sem seldar eru á vefsvæði vefverslunar www.sensitive.is. Vörur eru ekki seldar sem vitað er að valdi heilsutjóni og er það á ábyrgð kaupanda að tryggja að keypt vara henti viðkomandi með tilliti til heilsufars.

 

10. Greiðslumöguleikar
Á vefsíðu vefverslunar www.sensitive.is er boðið upp á að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum um greiðslugátt Rapyd hf..


11. Varnarþing
Skilmálar þessir samræmast íslenskum lögum og komi upp ágreiningur milli seljanda og kaupanda skal því vísað til viðeigandi aðila til úrlausnar.