Nuddkerti - Chocolate Temptation

4,500kr
Verð Ásamt, VSK (24%) 871kr
Á lager
Vörulýsing

Þetta nuddkerti er unnið úr náttúrulegum og lífrænum hráefnum og gefur bæði nuddara og nuddþega þægilega tilfinningu við notkun. Tilvalið fyrir nuddara að bæta vaxkertanuddi inn sem nýrri meðferð en hentar líka fyrir þá sem vilja skapa notalega stund með nákomnum.

Chocolate temptation nuddkertið hefur Súkkulaði-Pralín ilm. Súkkulaði (fyrir tilstuðlan theobromine og koffeins) getur haft jákvæð áhrif á húðina með því að auka brennslu og draga úr appelsínuhúð, þá getur það gert húðina teygjanlegri og stinnari.

Notkun:
Þráðurinn er klipptur niður í um það bil 1 cm og kveikt er á kertinu í 10-15 mínútur. Slökkvið á kertinu og látið vaxið kólna niður í passlegt hitastig sem hentar nuddþega og nuddara. Prufaðu hitastigið á vaxinu á eigin skinni í litlu magni fyrst áður en nuddið hefst.

Magn:
110 ml.

Helstu innihaldsefni:
Shea butter, soy wax, argan oil.

Innihaldsefni (INCI flokkun):
Butyrospermum Parkii (shea) butter, Soybean Oil, Hydrogenated Soybean Glycerides, Partially Hydrogenated Soybean Oil, Stearic Acid, Sweet Almond Oil, Argania spinosa kernel oil, Tocopherol, Fragrance.

Deila þessari vöru með vinum
Nuddkerti - Chocolate Temptation

Sens ehf.

kt 670423-0690

VSK nr 148605
sens@sensitive.is